Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/760
Börnum yngri en tveggja ára hefur á síðustu árum fjölgað hratt í leikskólum Reykjavíkur. Á sama tíma hefur vistunartími barna einnig lengst hratt og nú er mikill meirihluti barna í heilsdagsvistun. Þetta vekur spurningar um hæfni barna á fyrsta aldursári til að læra og þroskast í leikskóla. Hvað þarf að hafa í huga þegar verið er að skipuleggja starf og starfsumhverfi með yngstu börnunum. Að lokum hvernig eru leikskólarnir tilbúnir til að taka á móti þessum litlu börnum. Ég ákvað því að skoða þetta aðeins nánar og gerði m.a. litla viðtalsrannsókn. Þar spurði ég sex deildastjóra yngri barna deilda hér í Reykjavík um viðhorf þeirra til þessarar þróunar og hvernig þeir teldu sinn leikskóla búinn til að annast svona ung börn. Niðurstaða mín er sú að leikskólar í Reykjavík eru nokkuð vel búnir til að annast þessi börn en þó eru nokkur atriði sem þarf að bæta. Fyrst og fremst þarf að fækka börnum á þessum deildum frá því sem nú er. Annað sem þarf að huga að er ýmis aðbúnaður á deildum eins og t.d. skiptiaðstæður og vagnageymslur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Umhverfi og aðbúnaður yngri barna í leikskólum.pdf | 262.61 kB | Lokaður | heildarverkefni |