Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7656
Meginmarkmið athuguninnar er að varpa ljósi á viðhorf fagfólks leikskóla til hreyfihamlaðra barna í leikskólum í dag. Tekin voru viðtöl í tveimur leikskólum, við þrjá leikskólakennara og einn þroskaþjálfa. Unnið var eftir eigindlegum aðferðum við gerð könnuninnar. Helstu niðurstöðurnar sýndu að viðhorf fagfólks skipti máli á öllum sviðum starfsins með börnunum. Starfsmenn leikskólanna vildu almennt börnunum vel og allt fyrir þau gera en viðhorf þeirra gátu bæði rutt veginn eða hamlað þeim þegar leitað var að lausnum um hvað virkaði best í starfinu með börnum með hreyfihömlun.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð Berglind Reynisdóttir.2010.pdf | 427.67 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |