Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7662
Í greinargerð þessari verður fjallað um mikilvægi samstarfs heimilis og leikskóla fatlaðra barna og varpað ljósi á mikilvægi fjölskyldumiðaðrar þjónustu sem einkennist af samvinnu frá upphafi fyrir fjölskyldur barna með fatlanir í leikskólastarfi. Áhersla verður lögð á hlutverk leikskólakennarans í samstarfinu og bent á leiðir til að styðja sig við í samstarfi við fjölskyldur fatlaðra barna.
Sérstaklega verður stuðst við aðferð sem kölluð hefur verið Fjölskyldukerfiskenningin og sýnt fram á hagnýti hennarfyrir vinnu og samstarf í leikskólum.
Greinargerðinni fylgir einnig drög að bæklingi sem ætlaður er leikskólakennurum. Í bæklingnum er að finna hugmyndir sem leikskólakennarar geta stuðst við í starfi með fjölskyldum fatlaðra barna og stuðlar að samvinnu beggja aðila.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni.pdf | 292.84 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Bæklingur.pdf | 433.81 kB | Opinn | Bæklingur | Skoða/Opna |