is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7665

Titill: 
  • Klara könguló : greinargerð með barnabók og hugmyndir að heimspekilegu starfi með börnum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Verkefni þetta er lokaverkefni til B.ed. gráðu í leikskólakennarafræðum við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Verkefnið samanstendur af barnabókinni Klara könguló og greinargerð. Í greinargerðinni er fjallað um heimspeki með börnum, uppruna hennar og mikilvægi. Fjallað er um kosti þess að nýta barnabókmenntir til að vekja heimspekilegar samræður meðal barna og hlutverk kennarans í slíkum samræðum. Einnig er sýnt fram á að heimspeki eigi fullt erindi inn í leikskóla. Með greinargerðinni fylgja hugmyndir um það hvernig hægt er að nýta bókina Klara könguló í heimspeki með leikskólabörnum. Sagan um Klöru könguló er myndskreytt og er aðallega hugsuð fyrir fjögurra til sex ára börn, þó hún gæti einnig höfðað til yngri barna í grunnskóla. Hún er ekki skrifuð sem heimspekileg saga en gefur engu að síður ýmis tækifæri til umræðna og heimspekilegra vangaveltna um ýmis siðferðileg viðfangsefni eins og gott, vont, rétt, rangt og samskipti manna og dýra.

Athugasemdir: 
  • Barnabókin Klara könguló er saga fyrir börn á leikskólaaldri. Hún er skrifuð með það að leiðarljósi að vekja vangaveltur hjá börnum um samskipti manna og dýra, hvað teljist rétt eða rangt og hvað það sé að vera góður eða vondur. Með sögunni fylgir fræðileg greinargerð um heimspeki með börnum og hugmyndir að heimspekilegu starfi með börnum út frá sögunni um Klöru könguló.
Samþykkt: 
  • 4.3.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7665


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Klara könguló myndabók.pdf524.33 kBLokaðurBarnabókPDF
greinargerd med Klöru könguló.pdf173.56 kBLokaðurGreinargerðPDF