Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7665
Verkefni þetta er lokaverkefni til B.ed. gráðu í leikskólakennarafræðum við menntavísindasvið Háskóla Íslands. Verkefnið samanstendur af barnabókinni Klara könguló og greinargerð. Í greinargerðinni er fjallað um heimspeki með börnum, uppruna hennar og mikilvægi. Fjallað er um kosti þess að nýta barnabókmenntir til að vekja heimspekilegar samræður meðal barna og hlutverk kennarans í slíkum samræðum. Einnig er sýnt fram á að heimspeki eigi fullt erindi inn í leikskóla. Með greinargerðinni fylgja hugmyndir um það hvernig hægt er að nýta bókina Klara könguló í heimspeki með leikskólabörnum. Sagan um Klöru könguló er myndskreytt og er aðallega hugsuð fyrir fjögurra til sex ára börn, þó hún gæti einnig höfðað til yngri barna í grunnskóla. Hún er ekki skrifuð sem heimspekileg saga en gefur engu að síður ýmis tækifæri til umræðna og heimspekilegra vangaveltna um ýmis siðferðileg viðfangsefni eins og gott, vont, rétt, rangt og samskipti manna og dýra.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Klara könguló myndabók.pdf | 524.33 kB | Lokaður | Barnabók | ||
greinargerd med Klöru könguló.pdf | 173.56 kB | Lokaður | Greinargerð |