Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7666
Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort kennarar fái tilsögn í kennaranámi til þess að þjálfa virka hlustun barna. Rannsóknin var gerð vorið 2010 og þátttakendur í rannsókninni voru kennarar á yngsta stigi og miðstigi (1.-6. bekk) í Grunnskóla Seltjarnarness. Spurningalisti byggður á Linkerts kvarða var lagður fyrir 16 kennara sem útskrifuðust úr kennaranámi á rúmlega fjörutíu ára tímabili, frá árinu 1962 til 2008. Helstu niðurstöður könnunarinnar sýna að kennarar hafa fengið litla sem enga tilsögn í sínu kennaranámi til þess að þjálfa virka hlustun barna. Niðurstöður könnunarinnar og athugun á námsefni hjá kennaranemum í Háskóla Íslands og við Háskólann á Akureyri renna stoðum undir það að kennaranemar á Íslandi fái litla menntun í kennaranámi til þess að þjálfa virka hlustun hjá börnum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MARGRET_BEd_lokafragangur_18jan.pdf | 288.13 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |