is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/766

Titill: 
  • Tómstundir eldri borgara og forvarnir : fræðslu og upplýsingavefur
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þetta verkefni er vefverkefni hýst á vefsvæði KHÍ, http://lokaverkefni.khi.is/v2006/gukristj2/. Verkefnið hefur að geyma efni um tómstundir sem forvarnir og er áherslan á fólk eldra en 60 ára.
    Í þessu verkefni er fjallað um mikilvægi tómstunda í forvarnarskyni og einnig er farið yfir hvað er í boði í tómstundastarfi í Reykjavík.
    Vefnum er fyrst og fremst ætlað að vera upplýsinga- og fræðsluvefur fyrir eldri borgara en líka fyrir alla aðra sem tengjast málaflokknum á einhvern hátt og að sjálfsögðu alla sem áhuga eða gagn hafa af.
    Með því að hafa tengla sem vísa í þetta efni, þ.e. tómstundir og ýmis málefni sem snúa að eldri borgurum, inni á heimasíðunni er vonast til þess að eldri borgarar notfæri sér síðuna til upplýsingaöflunar. Þess er vænst að þar lesi fólk um mikilvægi tómstunda í forvarnarskyni og mikilvægi þess að finna sér eitthvað ánægjulegt til að hafa fyrir stafni á efri árum.
    Ekki er almennt í kerfinu nægilega markvisst unnið með tómstundir sem forvörn eða fólki bent á mikilvægi tómstunda. Heildarsýn og markmið vantar. Með tilkomu tómstundafræðinga verður vonandi unnið þrekvirki þessum málaflokki.

Samþykkt: 
  • 3.9.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/766


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Greinargerð.pdf236.21 kBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna
Vefur.zip1.48 MBOpinnVefurSkoða/Opna