Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7672
Ritgerð þessi fjallar í sögulegu og menningarlegu samhengi um íslensku ullina,hlutverk hennar á öldum áður og hvernig hún tengist menningarlegri sögu Íslands. Verkið skiptist í fimm meginhluta, fyrst umfjöllun um íslensku ullina, svo hönnun og framleiðslu á ullarflíkum og loks tengingu við skólastarf. Rakin er saga ullar, ullarvinnslu gerð skil, litun á ull og hvernig hlutverk hennar hefur breyst í gegnum tíðina. Fjallað er um hina sígildu lopapeysu, tilkomu hennar og hlutverk fyrr og nú. Komið er inn á nýja útfærslu á lopapeysum með tilkomu nýrra fyrirtækja. Þæfing er mjög gamalt handverk en undanfarin ár hafa komið nýir straumar sem tenjast þæfingunni þar sem möguleikarnir hafa aukist í litavali og gerð ullar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerd-lokaskil.pdf | 573.9 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |
Athugsemd: Kápa og titilsíða koma sér.