Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7682
Efnahagslægðin á Íslandi hefur haft mikil áhrif á fyrirtæki og starfsfólk þeirra. Fyrirtæki hafa þurft að gera breytingar á rekstri sínum og beita niðurskurði. Á tímum sem þessum hefur starfsfólk ríka þörf fyrir upplýsingar frá stjórnendum fyrirtækisins. Megintilgangur þessarar rannsóknar var að kanna upplifun starfsfólks íslenskra fyrirtækja af innri upplýsingamiðlun í efnahagslægð og finna hvort tengsl væru við starfsánægju, hollustu og þegnhegðun. Úrtakið samanstóð af 328 þátttakendum úr sex íslenskum fyrirtækjum. Notaður var spurningalisti á rafrænu formi sem innihélt fullyrðingar sem þátttakendur voru beðnir um að taka afstöðu til.
Niðurstöðurnar gefa til kynna að stjórnendur íslenskra fyrirtækja standi sig vel í innri upplýsingamiðlun að mati starfsfólks. Þá eru starfsmenn íslenskra fyrirtækja ánægðir í starfi, hliðhollir fyrirtæki sínu auk þess sem þeir sýna þegnhegðun.
Þá fundust jákvæð tengsl á milli ánægju með innri upplýsingamiðlun og allra þeirra þriggja vinnusálfræðilegra þátta sem skoðaðir voru.
Efnisorð: Fyrirtæki, innri upplýsingamiðlun, sanngirni í innri upplýsingamiðlun, starfsánægja, hollusta, þegnhegðun, efnahagslægð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Innri upplýsingamiðlun í efnahagslægð.pdf | 1.27 MB | Lokaður | Heildartexti |