Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/768
Tilgangur með starfi ungmennaráða er að veita unglingum sem ekki hafa kosningarétt fræðslu og þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum og skapa vettvang og leiðir til þess að þeir geti komið skoðunum sínum á framfæri. Til þess að komast að því hvað unglingar telja sig læra af því að starfa í ungmennaráði tók ég viðtöl við sex unglinga þar sem þau lýsa með eigin orðum reynsluheimi sínum og því sem þau telja sig hafa lært af því að starfa í ungmennaráði. Niðurstöðurnar benda til þess að unglingarnir læri margt og öðlist fjölbreytta reynslu. Þar ber hæst aukna færni í því að skoða hlutina frá öðru sjónarhorni en sínu eigin og að bera virðingu fyrir skoðunum annarra. Í verkefninu er einnig fjallað um einkenni unglingsáranna, lykilfærni í frítímanum, grunnforsendur ungmennalýðræðis og ungmennaráð. Niðurstöðurnar má nota til þess að sýna fram á mikilvægi þess starfs sem er unnið með ungu fólki á vettvangi ungmennaráða og kosti þess að beita lýðræðislegum vinnubrögðum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heildarskjal.pdf | 285.24 kB | Opinn | Heildarskjal | Skoða/Opna |