Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7702
Markmið þessarar ritgerðar er að leitast við að svara því hvort notkun fjölliðubætts bindiefnis hafi áhrif á eiginleika og/eða endingu malbiks. Farið er yfir uppbyggingu vega, gerð grein fyrir helstu slitlögum sem notuð eru hérlendis. Ítarlega er farið yfir hvaða þættir hafa áhrif á endingu slitlaga, auk þess sem farið er vel yfir helstu skemmdir sem verða í slitlögum og orsakir þeirra.
Í þessari ritgerð er fjallað um þrjár tilraunir þar sem notast hefur verið við fjölliðubætt malbik hérlendis. Það eru annars vegar tveir tilraunakaflar, á Reykjanesbraut 1991 og á Nesbraut 1995 og hins vegar tilraun sem unnin var á Nýsköpunarmiðstöð Íslands sumarið 2010. Niðurstöður þessara þriggja tilrauna eru bornar saman og dregin ályktun út frá þeim hvort fjölliðubætt malbik sé endingarbetra, hagkvæmara og/eða öruggara en hefðbundið malbik án fjölliða.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
samanburdur a malbiki.pdf | 2.79 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Forsida.pdf | 25.9 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
bokasafnssida.pdf | 59.04 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna |