is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7704

Titill: 
  • Hitaprófíll í fiskeldiskívum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Fiskræktun hefur aukist víða um heim á síðustu árum. Samkvæmt FAO (food and agriculture Organiztion) hefur verið stöðugur vöxtur í fiskrækt frá árinu 1970, þar sem 3,9 % af heildarframleiðslu fisks í heiminum var fiskræktun. Árið 2000 var fiskræktun orðin 27% af heildarframleiðslu fisks í heiminum. Laxeldi er stór hluti af fiskræktun og í Noregi á seinasta ári var framleidd rúmlega ein milljón tonn af eldislaxi og var útflutningsverðmæti framleiðslunnar um 500 milljarðar. Framleiðslu laxeldis er hægt að skipta upp í þrjú stig, hrognaframleiðslu, seiðaeldi í ferskvatni og svo matfiskeldi í sjókvíum.
    Kvíar fyrir laxaeldi í sjó eru miklar um sig eða um 160 metrar í þvermál og allt að 50 metrar að dýpt og er hitamunur frá yfirborði sjávar og til botns mjög breytilegur. Hitastig hefur mikil áhrif á vöxt fiskanna og er því nauðsynlegt að fylgjast vel með hitastigi í sjókvíum. Í þessu verkefni var hannað hitamælakerfi til að fylgjast með hitastigi sjávar frá yfirborði og niður á botn. Við hönnun nemans var haft til hliðsjónar að mælirinn þyrfti að vera með nákvæmni upp á 0,1°C. Til að ná þessu fram var farið í mikla leit að hitamótstöðu sem byði upp á mikla nákvæmni. Á endanum var PR222j2 hitamótstaðan frá U.S Sensors fyrir valinu með nákvæmni upp á 0,05 °C. Svo að hægt sé að lesa gögn frá mælunum þarf að notast við raðsamskipti og voru skoðaðir nokkrir mismunandi staðlar svo sem I2C, SPI og RS-232 en að lokum var það I2C staðallinn sem varð fyrir valinu vegna eiginleika hans til að notast aðeins við tvo víra til samskipta. Finna þurfti PIC örstýringu sem var með I2C raðsamskipta staðlinum og einnig með 12 bita hliðrænan til stafræna breytu fyrir valinu var dsPIC30f.
    Til að stjórna raðsamskiptum þurfti að finna örtölvu sem gat leyst þau verkefni sem fyrir hendi voru. Ákveðið var að notast við örtölvu sem heitir Arduino, sem er þeim kosti gædd að geta geymt upplýsingar sem og sent og náð í gögn frá mælunum og eining sent gögn í PC tölvu sem notuð yrði til að birta mæliniðurstöðurnar á skjá.

Samþykkt: 
  • 14.3.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7704


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni.loka.1.4.pdf3.62 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna