is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7717

Titill: 
  • Skólinn var ekki fyrir mig
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð fjallar um unga menn sem féllu ekki vel að ramma skólanna. Ritgerðin byggir á niðurstöðum eigindlegrar rannsóknar sem unnin var á árunum 2009-2010. Markmið rannsóknarinnar var að fá innsýn í reynslu ungra manna sem hafa slæma reynslu af skólagöngunni. Kannað var hvaða áhrif reynslan hafði á viðhorf þeirra til náms, hvernig þeir brugðust við hindrunum sem urðu á vegi þeirra þegar þeir voru í skóla og hvaða áhrif reynslan hafði á sjálfsmynd þeirra. Þátttakendur í rannsókninni voru sex ungir menn sem veittu mér viðtöl. Þeir voru á aldrinum 18-29 ára og fannst grunnskólinn ekki hafa verið fyrir sig.
    Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þrátt fyrir slæma reynslu af skólagöngunni og neikvætt viðhorf til grunnskólans drap það ekki niður löngun þeirra til að læra. Þeir þráðu allir viðurkenningu og skilning af hálfu skólanna, sem þeir fengu ekki, og lítill hluti hópsins lauk námi úr framhaldsskóla. Samt sem áður sýna niðurstöðurnar að viðhorf þeirra til áframhaldandi náms var jákvætt og að fjölskylduþættir höfðu áhrif á hvernig ungu mönnunum reiddi af á skólagöngunni.
    Það er von mín að niðurstöður rannsóknarinnar og frásagnir þátttakenda af reynslu sinni geti orðið til þess að skólarnir finni leiðir til að koma betur til móts við nemendur sem finnst að grunnskólinn hafni þeim.

Samþykkt: 
  • 15.3.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7717


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Klara.pdf523.46 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna