is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7722

Titill: 
  • Byltingin er búin – en þróunin er stöðug : um tæknistutt nám í fræðslustarfi fyrirtækja
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Útdráttur er á ensku

    Áhrif tækninnar á nám hafa verið mikið til umfjöllunar undanfarinn áratug og er fræðslustarf innan fyrirtækja þar í engu undanskilið. Tilkoma og þróun þess er rakin hér. Fjallað er um starfstengda fræðslu í ljósi námskenninga um kennslu fullorðinna. Einnig er litið til þess, í hvaða tilfellum tæknistutt nám sé vel til þess fallið að skila ákveðinni fræðslu og hvenær það henti síður.
    Eigindleg rannsókn var framkvæmd til að fá mynd af stöðu tæknistudds náms í fræðslustarfi sex íslenskra fyrirtækja. Á sumar- og haustmánuðum 2010 voru tekin hálfopin viðtöl. Viðmælendur voru fræðslustjórar fyrirtækjanna, hugbúnaðarsérfræðingur og tveir söluaðilar rafræns námsefnis. Leitast var við að draga upp mynd af fræðslustarfi í fyrirtækjunum og ástæður þess að notast er við tæknistuddar útfærslur í ákveðnum tilfellum. Gögnin voru greind með kóðun og að hluta til með grundaðri kenningu.
    Niðurstöður leiddu í ljós að með tilkomu tölvutækni, hefur merkjanleg breyting átt sér stað á fræðslustarfi fyrirtækjanna. Þróunin er þó mislangt á veg komin, og í engu tilfelli var um að ræða það sjálfsprottna nám gegnum félagsmiðla, sem nú einkennir mjög umfjöllun um tæknistutt nám. Tilskipuð fræðsla og kennsla á hugbúnað það sem helst er kennt fyrir tilstuðlan tækninnar, með námskeiðum á vef. Viðmælendur lögðu áherslu á að skapa slíkri fræðslu ákveðna umgjörð og veita starfsfólki bæði aðhald og hvatningu.
    Draga má þá ályktun að tæknistutt nám eigi eftir að þróast frekar á tilteknum sviðum í þeim fyrirtækjum sem rannsökuð voru. Sökum smæðar og nálægðar flestra íslenskra fyrirtækja, er hins vegar líklegt að hefðbundin fræðsla eða bland beggja verði ráðandi í nánustu framtíð.

Samþykkt: 
  • 16.3.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7722


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Jórunn Magnúsd-tilbuin.pdf471.26 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna