is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/780

Titill: 
  • Áskoranir í valddreifingu og auðlindastjórnun á norðurskautssvæðinu í kjölfar veðurfarsbreytinga
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Norðurskautssvæðið er fjölbreyttur staður þar sem saman koma átta þjóðríki, ótal þjóðarbrot
    með mismunandi menningu, áherslur og markmið. Þar er einnig að finna bæði fjölbreytt
    dýralíf og einstakar náttúruperlur. Norðurskautssvæðið er einnig hlaðið jafnt
    endurnýjanlegum og óendurnýjanlegum auðlindum og því miklir hagsmunir í húfi. Í kjölfar
    hnattrænnar hlýnunar má gera ráð fyrir að ásókn í þessar auðlindir muni aukast eftir því sem
    aðgengi eykst. Í sögulegi samhengi má líta svo á að norðurskautssvæðið hafi verið
    auðlindakista fyrir ríkin sem eiga þar land, en bæði meirihluti íbúa sem og stjórnarsetur þeirra
    eru fyrir utan norðurskautasvæði að Íslandi undanskildu. Breytt viðhorf í alþjóðastjórnmálum
    hafa leitt af sér aukna valddreifingu og eiga stjórnvöld nú erfiðara með að hafa sínu fram án
    samráðs við íbúa á svæðinu. Á norðurskautssvæðinu er að finna fjölbreyttan hóp frumbyggja
    sem hafa á seinustu áratugum unnið að því að fá rétt sinn til lands viðurkenndan og hafa þeir
    náð mikilvægum áföngum í þeirri baráttu sinni. Norðurskautssvæðið hefur að geyma mikin
    auð, í margvíslegu formi hvort sem það er í efnahagslegum eða menningarlegum skilningi og
    þarf að vernda þá auðlind. Þjóðirnar átta á heimskautasvæðinu ásamt samtökum frumbyggja
    hafa bundist böndum í Norðurskautsráðinu með sjálfbæra þróun að leiðarljósi. Breytingar þær
    sem framundan eru sökum hlýnunar munu kalla á aðlögun íbúa á svæðinu. Slíkri aðlögun þarf
    þó að fylgja geta, þekking og að valdhafar séu í nánum tengslum við það svæði og það
    samfélag sem þarf að aðlagast breyttum aðstæðum. Því er mikilvægt að staðbundið vald sé
    elft þar sem staðbundin stjórnvöld hljóta að hafa betra skynbragð á hvaða aðgerða er þörf til
    aðlögunar á nýjum aðstæðum.

Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/780


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA_Askoranir_i_valddreifingu.pdf574.32 kBOpinnÁskoranir - heildPDFSkoða/Opna