is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Ráðstefnurit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7834

Titill: 
  • Mikilvægi óhefðbundinna tjáskiptaleiða í skólastarfi
Útgáfa: 
  • Desember 2010
Útdráttur: 
  • Tilefni greinarinnar er yfirstandandi innleiðing samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hér á landi. Samningurinn er mannréttindasamningur og í honum er lögð rík áhersla á að allir eigi þess kost að tjá sig. Þeir sem ekki geta talað á venjubundinn hátt þurfa að reiða sig á aðrar tjáningarleiðir og gegna óhefðbundnar tjáskiptaleiðir mikilvægu hlutverki í því sambandi. Í greininni er athyglinni beint að mikilvægi þess að óhefðbundar tjáskiptaleiðir séu notaðar til tjáskipta frá unga aldri með börnum er þeirra þarfnast. Sérstaklega er fjallað um Tákn með tali tjáskiptaleiðina sem þróuð hefur verið og mikið notuð undanfarna áratugi. Sagt er frá könnun á notkun Tákna með tali í leikskólum hér á landi en niðurstöður hennar sýndu að sú tjáskiptaleið er notuð í a.m.k. 50% leikskóla á landinu. Notkunin er þó fremur einhæf sem samræmist niðurstöðum erlendra rannsókna um sama efni.

  • Útdráttur er á ensku

    The motivation for this article is the adoption of the United Nations convention on the rights of persons with disabilities in Iceland. To be able to communicate is one of the cornerstones of human life. The paper highlights the role of the school system in implementing appropriate means in communicating for those who can not speak. A survey on the use of supported sign language in Icelandic preschools is described. The findings showed that supported sign language was used to some extent in about 50% of all preschools in the country. The findings also indicate that supported sign language is mainly used in structured situations, managed by adults which conforms international research findings on the same topic.

Athugasemdir: 
  • Ráðstefnurit Netlu
Samþykkt: 
  • 31.3.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7834


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
0182.pdf176.51 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna