Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/783
Vinnuþrælkun barna er útbreitt vandamál í heiminum í dag, sérstaklega í hinum
vanþróuðu ríkjum Afríku, Asíu og Mið- og Suður Ameríku. Hin þróuðu iðnríki fara þó
ekki varhluta af þessu vandamáli. Samkvæmt tölum frá Alþjóðavinnumálastofnuninni (
skammstöfun ILO) sem birtust 2006, áætlaði hún að fjöldi vinnandi barna árið 2004 hefði
verið um 218 milljónir og að meira en 60% af þessum börnum væru hneppt í
vinnuþrælkun af verstu gerð. Á síðastliðnum tveim áratugum hefur orðið mikil
vitundarvakning og athygli alþjóðasamfélagsins beinist nú í auknum mæli að þessu
vandamáli sem hefur verið látið afskiptalaust allt of lengi. Það er gríðarlega
umfangsmikið og margir samfélagslegir þættir eru fléttaðir saman, m.a. fátækt,
menntunarskortur, splundrun fjölskyldna og veikindi foreldra. Á alla þessa þætti verður
því að ráðast. Börn, allt niður í 5 ára gömul eru send út á vinnumarkaðinn vegna mikillar
fátæktar og oft er um munaðarlaus börn að ræða. Aðildarríki ILO gerðu með sér sáttmála
um tafarlausar aðgerðir gegn og bann við, vinnuþrælkun barna af verstu gerð sem kom út
árið 1999 og nefnist C182 Worst Forms of Child Labour Convention, 1999. Sérstök
áætlun um hvernig sáttmálanum skuli framfylgt, sem nefnist R190 Worst Forms of Child
Labour Recommendations, 1999, var einnig gefin út. Í sáttmálanum kemur fram hvaða
tegund atvinnu telst hættuleg börnum samkvæmt ILO. Með staðfestingu sáttmálans,
skuldbinda ríkin sig til að hefjast tafarlaust handa við að koma í veg fyrir og útrýma
vinnuþrælkun barna í sinni verstu mynd. Ritgerð þessi fjallar um þetta vandamál almennt
og verður leitast við að varpar ljósi á þau alþjóðalög, sáttmála og yfirlýsingar sem varða
efnið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Efnisyfirlit.pdf | 144.77 kB | Opinn | Vinnuþrælkun - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Endanlegt útlit.pdf | 538.44 kB | Takmarkaður | Vinnuþrælkun - heild | ||
Heimildaskrá.pdf | 140.26 kB | Opinn | Vinnuþrælkun - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
útdráttur.pdf | 63.69 kB | Opinn | Vinnuþrælkun - útdráttur | Skoða/Opna |