Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7910
Í þessari ritgerð er farið yfir stefnu átta Evrópusambandsríkja, auk Íslands, gagnvart vændi,mansali, fæðingarorlofi og fóstureyðingum. Markmiðið er að skoða Evrópuvæðingu á
mannréttindum kvenna í þessum ríkjum. Sérstök áhersla er lögð á heilsufélagslega þætti og farið yfir regluverk í þessum málaflokkum. Kenningarlegur grundvöllur umfjöllunarinnar er
sóttur í Evrópusamruna annars vegar og kvenfrelsi hins vegar. Skoðað er hvernig Evrópusamruninn færir sig frá því að vera hreint efnahagssamstarf og yfir í aukna samvinnu á
pólitískum og félagslegum grundvelli. Farið er yfir kenningar femínista og hvernig þær kenningar endurspeglast í stefnum stjórnvalda. Stefnugreiningu er beitt til að kanna áhrif
löggjafar hvers ríkis fyrir sig á stöðu kvenna gagnvart kynbundnu ofbeldi í formi vændis og mansals, lögum um fæðingarorlof og rétt til fóstureyðinga. Niðurstaðan er sú að jafnréttislöggjöf hefur að hluta til áhrif á stöðu kvenna í þessum Evrópuríkjum, en aðrir þættir spila þó töluvert hlutverk og má þar helst nefna vinnumarkað, trúarbrögð, menningu, hefðir og ríkisstjórnir sjálfar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
HelenaEydal_MA_final.pdf | 739.19 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |