is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/791

Titill: 
  • Privileges and immunities of international organizations
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Alþjóðastofnanir geta tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi með ríkjum og öðrum
    alþjóðastofnunum. Þar sem þær eru lögaðilar þá geta þær skrifað undir
    samninga við ríki og aðrar alþjóðastofnanir. Samskipti á alþjóðavísu gera
    þeim kleift að hafa sendinefndir staðsettar í löndum heimsins. Fulltrúar
    þeirra taka þátt í samningaviðræðum við gistiríkin sem sendinefndirnar eru
    staðsettar í. Vegna starfs og tilgangs sendinefndanna þurfa þær diplómatíska
    friðhelgi og fríðindi til þess að uppfylla tilgang sendifararinnar. Árið 1975
    gerði Alþjóðalaganefndin hinn svo kallaða Vínarsamning um fulltrúa ríkja
    gagnvart alþjóðastofnunum. Samningur var nokkuð óvinsæll á meðal
    aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna og því er hann ekki í gildi. Þrjár
    alþjóðastofnanir eru skoðaðar í þessu lokaverkefni: Sameinuðu þjóðirnar,
    Evrópusambandið og Afríkusambandið. Stofnanir þeirra, saga og tilgangur
    eru atriði sem eru skoðuð í þeim tilgangi að fá betri skilning, af hverju slíkar
    stofnanir ættu að hafa öðlast diplómatíska friðhelgi of fríðindi. Fjöldi
    alþjóðastofnana hefur farið vaxandi. Mikilvægi og vald þeirra dregur fram
    spurninguna um hvort þær ættu að hljóta takmörkuð friðhelgisréttindi eða
    full diplómatísk réttindi. Niðurstaðan er að takmörkuð friðhelgi er nægileg
    fyrir alþjóðastofnanir frekar en full.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/791


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
EFNISYFIRLIT PDF.pdf104.1 kBOpinnPrivileges - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildarskrá.pdf125.56 kBOpinnPrivileges - heimildaskráPDFSkoða/Opna
útdráttur.pdf71.6 kBTakmarkaðurPrivileges - útdrátturPDF
öll ritgerðin.pdf371.15 kBTakmarkaðurPrivileges - heildPDF