is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/796

Titill: 
  • Hvernig er að vera aldraður í samfélagi nútímans?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðhorfið til þess að eldast er viðfangsefni þessarar rannsóknar. Markmiðið er
    að fá skýrari mynd af því hvaða hugmyndir fólk gerir sér um efri árin. Það er farið í
    smiðju fræðimanna frá ýmsum tímum til að skoða hugmyndir þeirra um atriði sem
    tengjast því hvernig viðhorf einstaklingsins þróast og þroskast með hækkandi aldri.
    Megin ásar umræðunnar eru: dygðir, virkni, virðing og að vera einhvers virði.
    Fjallað er um kenningar um öldrun í samhengi við lífshlaup og þroska
    einstaklinga. Kenningar um farsæla framvindu lífsins hafa nýverið litið dagsins ljós
    og með þeim er nýtt sjónarhorn á öldrun kynnt. Rýnt er í greinar í dagblöðum og
    tímaritum og síðan er farið á vettvang og tekin viðtöl við fólk sem komið er á efri ár.
    Gripið er nokkuð tilviljanakennt niður í skrif lærðra og leikra en reynt að
    forðast skrif með sjúkdóma, peningamál og stjórnmál að meginefni. Í viðtölum var
    lagt upp með hvað fólk hefði að segja um það að eldast og að vera kominn á efri ár og
    viðmælendum gefin lykilorðin: virðing, réttlæti og hamingja. Aldraðir í þjóðfélaginu
    eru skilgreindir út frá lífaldri, en bæði í greinum og orðræðu vísar hugtakið oftast til
    þeirra sem eru við lélega heilsu. Virðing er almennt talin dvínandi í samfélaginu og
    umfjöllun um réttlæti er oft tengd fjármálum. Hamingjuefni aldraðra eru önnur en
    þeirra sem yngri eru en ekkert bendir til að hamingja þeirra þurfi að vera minni en
    unga fólksins.
    Niðurstaðan úr umræðunum um það að vera gamall var í stórum dráttum sú að
    flestir leggja sama skilning í það að vera gamall og það að vera heilsulaus.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/796


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hvernig er að vera aldr-efnisyfirlit.pdf9.87 kBOpinnAð vera aldraður - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Hvernig er að vera aldr-heimild.pdf11.1 kBOpinnAð vera aldraður - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Hvernig er að vera aldr-samsett.pdf1.28 MBTakmarkaðurAð vera aldraður - heildPDF
Hvernig er að vera aldr-útdráttur.pdf7.15 kBOpinnAð vera aldraður - útdrátturPDFSkoða/Opna