is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7991

Titill: 
  • Samþætt heilbrigðis- og félagsþjónusta fyrir aldraða. Fræðileg samantekt
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Á Íslandi sem og í hinum vestræna heimi mun öldruðum fjölga hlutfallslega á komandi áratugum. Með hækkandi aldri aukast líkur á langvinnum sjúkdómum sem kalla á margháttaða aðstoð frá hinu opinbera. Á liðnum áratugum hefur verið þróuð fjölbreytt heimaþjónusta, bæði heilbrigðis- og félagsþjónusta sem miðar að því að uppfylla líkamlegar, andlegar og félagslegar þarfir eldri borgara. Flest sveitarfélög hafa slíka þjónustu og er markmið hennar að gera öldruðum kleift að eyða ævikvöldinu eins lengi og hægt er á heimili sínu. Hér á landi er ábyrgð á þjónustu fyrir aldraðra í heimahúsum á hendi tveggja aðila, sveitarfélögin bera ábyrgð á félagsþjónustu en ríkið á heimahjúkrun. Yfirlýst stefna stjórnvalda er að færa málaflokk aldraðra yfir til sveitarfélaganna og samtvinna þessa þjónustu undir sameiginlega stjórn þar sem sveitarfélögin verða ábyrg fyrir framkvæmd og fjárhag.
    Tilgangur þessarar fræðilegu samantektar var tvíþættur, í fyrsta lagi að skoða hver væri ávinningur samþættingar heilbrigðis- og félagsþjónustu fyrir aldraðra í heimahúsum og í öðru lagi að kanna hvað einkennir árangursrík samþættingarverkefni á því sviði. Fræðilega samantektin byggir á rannsókna- og yfirlitsgreinum frá árunum 2000-2011 auk tímamótagreina sem birtust fyrir þann tíma.
    Samkvæmt niðurstöðum samantektarinnar er megin tilgangur samþættingarinnar annars vegar að auka hagkvæmni og skilvirkni og hins vegar að auka gæði þjónustunnar og ánægju skjólstæðinganna. Árangursríkustu samþættingarverkefnin fela meðal annars í sér þjónustustjóra/þjónustustjórnun, eina þjónustugátt, einstaklingshæfða áætlun og mat, árangursríka teymisvinnu og góða eftirfylgni. Samþætting heilbrigðis- og félagsþjónustu hefur sýnt að aldraðir geta lengur notið lífsins á eigin heimili sé vel staðið að hverjum þjónustuþætti og samþættingu þeirra.

  • Útdráttur er á ensku

    In Iceland, just as in every western country, the number of older people will grow in the next decades. Higher age calls for more government support given the fact that the number of complex health problems will grow as well. In past decades a broad variety of home-services, both health and socially oriented, has been developed, aiming to fulfill the physical, psychological and social needs of the elderly. This kind of service can be found in most communities, it’s aim is to make it possible for older people to stay for as long as they can at their home. In Iceland the responsibility for the home-service for the elderly rests on two shoulders: the communities are responsible for the social service but the state for health care. The government has, however, decided to shift the responsibility for health services to the communities and integrate these two kinds of service where the communities would be responsible for both its execution and finances.
    The purpose of this literature review was twofold: to analyse the gains from integrating health- and social services and to identify characteristics of a successful integration on the field. The review is based on articles from 2000-2011 and breakthrought articles that were published before that.
    According to the conclusion of the review the main purpose of integration is to improve continuity and increase the efficiency and efficacy of services and, on the other hand, to increase the quality of service and customer satisfaction. The most successful integration projects include a case manager/management, a single entry point, an individualized service plans and evaluation, successful teamwork and good follow-up. The integration of health- and social services has shown that the elderly can enjoy a longer stay at their own home if every aspect of the service and integration is taken into account and meticolously planned.

Samþykkt: 
  • 28.4.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7991


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
meistararitgerd HEP.pdf472.04 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna