is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8008

Titill: 
  • Fjörutíu leiðir til að búa til barn: Lagaumhverfi og samfélagsumræða um staðgöngumæðrun á Íslandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í lok árs 2010 og byrjun 2011 skapaðist mikil umræða um staðgöngumæðrun á Íslandi. Þingsályktunartillaga um heimilun staðgöngumæðrunar í velgjörðaskyni var rædd á Alþingi og þar var þverpólitískur stuðningur við tillöguna. Mikill meirihluti landsmanna sagðist styðja að staðgöngumæðrun yrði leyfð hér á landi í skoðanakönnunum. Fagaðilar sem gáfu umsagnir um tillöguna voru ekki á sama máli og bentu á að ræða þyrfti málið mun meira áður en lög yrðu sett. Ýmis álitamál hefðu ekki verið leidd til lykta. Í þessari ritgerð er spurt hvort fólk eigi rétt á því að eignast barn. Tekin voru viðtöl við sérhæfða lækna og gögn frá Alþingi voru mikið notuð. Farið er yfir ófrjósemi og úrræði sem til eru við henni með áherslu á staðgöngumæðrun. Réttindi hinna ýmsu hópa, foreldra, barna, og staðgöngumæðra verða skoðuð. Þá verður farið yfir siðferðileg álitamál í tengslum við staðgöngumæðrun. Niðurstaðan er sú að það teljast ekki mannréttindi að eignast barn og fá hjálp við það, heldur eru það forréttindi. Þá hefur ekki farið fram víðtæk umræða um öll siðferðilegu álitamálin sem koma upp við staðgöngumæðrun.

Samþykkt: 
  • 28.4.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8008


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
40 leiðir til að búa til barn.pdf551.96 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna