Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/805
Lokaverkefni þetta samanstendur af barnabókinni Hvar finn ég foreldra? og meðfylgjandi ritgerð. Markmið verkefnisins var að skapa skemmtilega og áhugaverða bók sem nýtist ein- og tvítyngdum börnum. Með því að hafa textann á íslensku og pólsku er stuðlað að þróun læsis hjá öllum börnum sem tala íslensku en einnig þróun læsis beggja tungumála hjá þeim börnum sem hafa pólsku sem móðurmál en lifa í íslensku samfélagi.
Ritgerðin sem bókin fylgir, greinir frá gildi bóka fyrir börn og ýmis svið þroska þeirra. Einnig er greint ítarlega frá einkennum myndabóka. Hvernig þær eru uppbyggðar og hvernig tæknileg atriði hafa áhrif á lesandann og upplifun hans. Að lokum er gerð grein fyrir vinnu bókarinnar Hvar finn ég foreldra?, hugmyndum höfundar og myndskreytara, hvernig þær hugmyndir þróuðust í samvinnu þeirra og hvaða leiðir þeir völdu við úrvinnslu hugmyndanna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerd.pdf | 215.14 kB | Opinn | Barnabókmenndir, greingargerð | Skoða/Opna | |
Copy of myndabokin-Hvar finn eg foreldra.pdf | 206.84 MB | Opinn | Myndabók | Skoða/Opna |