is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8064

Titill: 
  • „Maður skilgreinir svolítið sjálfan sig í gegnum vinnuna.“ Viðhorf starfsfólks fjármálafyrirtækja í kjölfar atvinnumissis
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Í kjölfar bankahrunsins árið 2008 fjölgaði atvinnulausum einstaklingum til muna og er svo komið að atvinnuleysi á Íslandi hefur aldrei verið eins mikið og nú. Atvinnumissir getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir einstaklinga og varðar bæði líkamlega og andlega heilsu, félagslega stöðu, fjárhag og fjölskyldur.
    Markmið rannsóknarinnar er að kanna viðhorf starfsmanna fjármálafyrirtækja sem misstu vinnuna í kjölfar efnahagshrunsins og fá innsýn í þeirra orðræðu.
    Rannsóknin byggir á eigindlegri rannsóknaraðferð. Tekin voru tólf viðtöl við einstaklinga, fjörutíu ára og eldri, sem misstu störf sín í hópuppsögnum eða vegna hagræðingar. Í viðtölunum tjáðu viðmælendur sig um upplifun sína og reynslu eftir atvinnumissinn.
    Niðurstöðurnar gefa til kynna að uppsagnirnar hafi haft talsverð neikvæð áhrif á líðan og sjálfsmynd einstaklinganna. Flestum viðmælendum leið einnig illa í aðdraganda hrunsins en þá var mörgum samstarfsmönnum þeirra sagt upp störfum. Að mati viðmælenda skiptir aldur miklu máli þegar leitað er að nýju starfi, þar sem þeim hefur gengið illa í atvinnuleit og sumir eru hreinlega búnir að gefast upp. Athygli vekur að þátttakendur telja sig ekki eiga í fjárhagserfiðleikum þótt flestir hafi þurft að draga saman seglin.
    Almennt fannst viðmælendum illa staðið að uppsögnunum og þeim ber saman um að samskipti þeirra við Vinnumálastofnun séu neikvæð. Þess ber að geta að þeir viðmælendur sem misstu störf sín vegna hópuppsagna töldu Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja standa sig vel hvað varða stuðning og upplýsingar í kjölfar uppsagnarinnar.

  • As a result of the collapse of the banking system in Iceland 2008, unemployment increased dramatically and now unemployment has never been as high in the country. Being unemployed can result in negative effects on physical and mental health, social status, economy and ones family.
    The aim of this research is to study the attitude and life discourse of employees that lost their jobs in banks after the bank collapse.
    The research method is qualitative. Individuals, 40 years and older, that lost their jobs in a mass lay-off, or because of rationalization, were interviewed. They descriped their experience and how they felt after losing their jobs.
    The results of the study show that lay-off of employment has a negative effect on wellbeing and self image. Many of the interviewed individuals did not feel well before the collapse, since at that time many of their collegues already received their termination of employment. Age seemed to be a crucial factor in seeking new jobs, since the individuals have been unsuccessful in their search for jobs and some of the individuals had already given up seeking a new job. It is interesting that the individuals did not feel they had financial difficulties, although many of them had to cut down on their expenses.
    In general the interviewed individuals felt that the handling of their termination of employment was not fair and their experience with the Directorate of Labor is rather negative. It has to been pointed out that interviewees that lost their jobs in a mass lay-off felt that the Confederation of Bank and Finance Employees (SSF) supported them well and gave a good information after the termination of employment.

Samþykkt: 
  • 29.4.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8064


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Allt prenta pdf.pdf681.46 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna