is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8100

Titill: 
  • Fjárhagsáætlun, betri áætlun eða handan áætlunar. Rannsókn í fjórum fyrirtækjum
  • Titill er á ensku Budgeting, Better Budgeting or Beyond Budgeting
Námsstig: 
  • Meistara
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Markmið ritgerðarinnar er að kanna fræðilegan bakgrunn kenninga um fjárhagsáætlun, betri áætlun og handan áætlunar og greina eiginleika og takmarkanir þessara aðferða. Vinnuaðferðir við gerð fjárhagsáætlunar er rannsökuð hjá fjórum íslenskum fyrirtækjum, ánægja með það ferli og vilji til breytinga. Jafnframt er kannað hverjar séu forsendur þess að hin sömu fjögur fyrirtæki taki upp aðferðarfræði handan áætlunar við stjórnun síns rekstrar.
    Til að bæta marga af göllum fjárhagsáætlunar notar aðferðin „betri áætlun“ (better budgeting) ólík hjálpartæki í fyrirtækjastjórnun sem komið hafa fram á síðustu árum. Aðferðin „handan áætlunar“ eða „lengra en áætlun“ (beyond budgeting) gengur enn lengra. Aðferðin byggir á 12 grunnatriðum í stjórnun og rekstri. Þá er gjarnan notast við stjórntæki, einkum stefnumiðað árangursmat og verkþáttakostnaðargreiningu. Þar sem ekki er gerð fjárhagsáætlun, eru markmið ekki miðuð við hana. Þess í stað miðast markmið við innri og ytri mælieiningar sem eru ekki fyrirfram fastsett. Ákvarðanir og ábyrgð er flutt til framlínustjórneda og þar með eykst dreifstýring.
    Spurningar voru lagðar fyrir stjórnendur Deloitte hf, PwC, Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar. Í niðurstöðum kom fram nokkur gagnrýni á fjárhagsáætlun. Þremur fyrirtækjum er ráðlagt að innleiða grunnatriði handan áætlunar og kanna samhliða betur þörfina á innleiðingu á aðferðinni handan áætlunar. Endurskoðunarfyrirtækin eru minna gagnrýnin á fjárhagsáætlun en orkufyrirtækin. Vinnubrögð endurskoðunarfyrirtækjanna eru meira í takt við grunnatriði handan áætlunar en hjá hinum fyrirtækjunum. Orkufyrirtækin eru hins vegar lengra komin í innleiðingu stjórntækja sem henta aðferð handan áætlunar.

Samþykkt: 
  • 2.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8100


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ritgerðartexti[1] skil.pdf883.6 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna