Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8211
Viðfangsefni þessarar ritgerðar er skoða hluta af þeim staðbundnu hagrænu áhrifum sem álverið í Reyðarfirði hefur haft á Austurland og þá sérstaklega beint sjónum að því sem gerðist eftir að framkvæmdum lauk árið 2008 og til loka árs 2010. Íbúaþróun og samsetning íbúa fyrir og eftir framkvæmdir verða skoðuð. Atvinnustig, breytingar á tekjum fólks, menntun íbúa og áhrif framkvæmdanna á fyrirtæki verða einnig skoðuð. Þá verður þróun hagvaxtar skoðuð og hugsanleg ruðningsáhrif álversins rædd. Farið verður yfir þær hræringar sem urðu á fasteignamarkaði í kjölfar ákvörðunar um framkvæmdir. Sérstaklega er verðþróun fasteigna skoðuð sem og velta og fjöldi kaupsamninga. Einnig verður farið yfir stöðu mála varðandi autt íbúðarhúsnæði í Fjarðarbyggð og á Fljótsdalshéraði eftir að framkvæmdum lauk árið 2008.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA ritgerð - Brynhildur Bertha.pdf | 1.22 MB | Lokaður | Heildartexti |