is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8213

Titill: 
  • Óefnislegar auðlindir, stefna og árangur fyrirtækja
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Samkeppnisumhverfi fyrirtækja felur í sér margvíslegar ógnanir en líka tækifæri. Stjórnendur þurfa að hafa skilning á því hvaða þættir í innviðum fyrirtækja skipta máli til að ná samkeppnisforskoti og árangri.
    Viðgangsefni ritgerðar er samband óefnislegra auðlinda, stefnu og árangurs.
    Markmið rannsóknarinnar er að kanna tengsl óefnislegra auðlinda - mannauðs, viðskiptaauðs, upplýsingaauðs og skipulagsauðs – við þrjá stefnukosti fyrirtækja: stefna um aðgreiningu, stefna um afmörkun og stefna um að vera ,,leiðandi í lágum kostnaði“. Jafnframt er skoðað hvaða tengsl ofangreindar stefnur hafa við árangur fyrirtækja, bæði varðandi markaðslegan árangur og arðsemi.
    Rannsóknin byggist á megindlegri aðferðafræði og skoðar lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi.
    Niðurstöður sýna að upplýsingaauður er með tengsl við stefnuna um að vera ,,leiðandi í lágum kostnaði“ á meðan ekkert samband mælist á milli óefnislegra auðlinda og aðgreiningar. Tengsl eru á milli skipulagsauðs og stefnunnar um afmörkun á markaði. Stefnurnar aðgreining og að vera ,,leiðandi í lágum kostnaði“ hafa mestu tengslin við markaðslegan árangur. Ekkert samband mælist milli stefnukosta og arðsemi fyrirtækja. Hins vegar hefur markaðslegur árangur tengsl við arðsemina.
    Mikilvægt er að ákvarðanir stjórnenda varðandi fjárfestingar í óefnislegum auðlindum, stefnuval og markmið um árangur séu teknar samhliða og styðji við hver aðra. Árangur fyrirtækja verður meiri ef ofangreindir þættir byggja hver á öðrum.

Samþykkt: 
  • 3.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8213


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
GudrunTinnaOlafsdottir.PDF1.55 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna