Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8301
Markmið ritgerðarinnar er umfjöllun um reglur sem varða vernd og nýtingu vatns. Leitast verður við að lýsa núgildandi lagaumgjörð vatnsmála, með áherslu á reglur sem gilda um vatnsvernd, þ.e. vatnsgæði og vatnsmagn annars vegar, og eigna- og nýtingarrétt á vatni hins vegar. Þá verður fjallað um tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2000/60/EB frá 23. október, um aðgerðarramma bandalagsins um stefnu í vatnamálum (vatnatilskipunina), sem leggur víðtækar skyldur á aðildarríki hvað varðar vatnsvernd. Því næst verður fjallað um innleiðingu vatnatilskipunarinnar í íslenskan rétt. Tilskipunin var innleidd með lögum nr. 36/2011 um stjórn vatnamála, en gerð verður grein fyrir útfærslu reglna tilskipunarinnar í lögunum. Leitast verður við að lýsa þeim atriðum tilskipunarinnar sem valdið hafa óvissu hvað varðar réttaráhrif, þ.e. umhverfismarkmið og umhverfismörk. Skoðað verður, til samanburðar, hvernig þessi atriði hafa verið útfærð í íslenskum lögum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
María.pdf | 1.24 MB | Lokaður | Heildartexti |