Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8320
Tvær tilgátur voru kannaðar í tilraun og voru þátttakendur 12 leikmenn úr meistaraflokki karla í íshokkí. Annarsvegar var rannsakað hvort endurgjöf til leikmanna í íshokkí yki tíðni sendinga. Hinsvegar hvort endurgjöf yrði til þess að leikmenn sendu nákvæmari sendingar, þannig að hlutfall heppnaðra sendinga myndi aukast hjá þeim. Tilraunin skiptist í grunnlínumælingu og tvær inngripsmælingar þar sem tilraunahópur fékk endurgjöf. Niðurstöður fyrri tilgátunnar voru þær að þeir leikmenn sem fengu endurgjöf sendu pökkinn oftar í kjölfarið en við grunnlínumælingu og átti það við í bæði skiptin sem endurgjöf var komið til skila. Niðurstöður seinni tilgátu voru þær að endurgjöf hafði engin áhrif á hlutfall sendinga á samherja.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Stefan Gunnarsson.pdf | 320.61 kB | Lokaður | Heildartexti |