Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8357
Hér er fjallað ítarlega um kvikmyndina Easy Rider frá árinu 1969, og hefst ritgerðin á stuttu forspjalli um myndina þar sem hún er sett í samhengi við hina svokölluðu nýju Hollywood. Í fyrsta kaflan er fjallað um þá erfiðu tíma sem bandaríkst samfélag var að ganga í gegnum þegar myndin kom út. Ásamt því að fjalla um hvað átti sér á bak við tjöldin, þ.e. hvers vegna myndinni gekk eins vel og raun bar vitni. Í öðrum kafla eru aðalpersónur myndarinnar, mótorhjólakapparnir Wyatt og Billy, í brennidepli. Næst er fjallað ég um jaðarhóp samfélagsins sem Wyatt og Billy tilheyra og þá samfélagsmynd sem birtist í Easy Rider. Í fjórða og síðasta kafla er tæknileg hlið myndarinnar tekin fyrir, einkum klipping og myndataka. Loks er í niðurlaginu sjónum beint að orðspori myndarinnar í gegnum tíðina.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
easy.rider.ritgerd.pdf | 3.77 MB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
forsidatitilblad.pdf | 18.54 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna |