is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/839

Titill: 
  • Hver er staða og framtíðarhorfur íslenskra lífeyrissjóða út frá örorkuþætti sjóðanna?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessu verkefni eru lífeyrissjóðir á Íslandi skoðaðir og er örorkuþáttur
    þeirra sérstaklega tekinn fyrir. Rennt er yfir sögu lífeyrissjóðanna, lög og
    reglugerðir skoðaðar og skoðað hvernig íslenskum lífeyrismálum er
    háttað. Þá er skoðað hvað öryrkjar fá í örorkubætur og hvaða réttindi þeir
    eiga hjá lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun ríkisins og hver þróunin
    hefur verið í örorkumálum hér á landi undanfarið. Athugað verður einnig
    hvernig rekstur lífeyrissjóðanna hefur gengið undanfarin ár.
    Öryrkjum hefur fjölgað mjög á síðustu árum langt umfram áætlanir
    sjóðanna og því hefur verið um vanmat á skuldbindingum sjóðanna að
    ræða til ársins 2004 er Félag íslenskra tryggingastærðfræðinga gaf út nýjar
    örorkutöflur byggðar á íslenskum líkum, en stuðst hafði verið við danskar
    örorkulíkur fram að þeim tíma. Því hafa greiðslur sjóðanna og
    skuldbindingar vaxið gríðarlega undanfarið. Sérstakt áhyggjuefni er einnig
    að meðalaldur öryrkja er að lækka sem þýðir auknar greiðslur og
    skuldbindingar sjóðanna vegna þeirra. Þessu til viðbótar hafa ævilíkur
    Íslendinga einnig aukist og þar með skuldbindingar sjóðanna en hækkun
    mótframlags launagreiðenda í lífeyrissjóð úr 6% í 8% er ætlað að mæta
    því.
    Svarið við spurningunni um: ,,Hver er staða og framtíðarhorfur íslenskra
    lífeyrissjóða út frá örorkuþætti sjóðanna” er að þó að sjóðirnir hafi verið
    að vaxa gríðarlega undanfarin ár og þá sérstaklega vegna frábærrar
    raunávöxtunar síðast liðin fjögur ár, hafa lífeyrisskuldbindingar sjóðanna
    vegna örorku vaxið að sama skapi gríðarlega og valdið því að hjá sumum
    sjóðunum er hrein eign umfram skuldbindingar neikvæð síðustu þrjú til
    fjögur árin þrátt fyrir þann árangur sem náðst hefur hjá sjóðunum í
    ávöxtun. Haldi þróun í fjölda öryrkja áfram á sömu braut og raunávöxtun
    sjóðanna lækkar, er staða sjóðanna til framtíðar ekki björt.
    Lykilorð: Lífeyrisskuldbindingar, örorkubætur, framtíð, réttindi,
    lífeyrissjóðir.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/839


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Efnisyfirlit_KBA_Lok2106.pdf78.35 kBOpinnHver er staða - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá_KBA_Lok2106.pdf100.67 kBOpinnHver er staða - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Lokautgafa_KBA_Lok2106.pdf1.46 MBLokaðurHver er staða - heildPDF
Útdráttur_KBA_Lok2106.pdf54.5 kBOpinnHver er staða - útdrátturPDFSkoða/Opna