is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/842

Titill: 
  • „Trén eru að dansa í rokinu“ : að læra um umhverfi sitt Elliðaárdalinn
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessa verkefnis var að athuga hvernig nota mætti bókina Elliðaárdalur eftir Gyðu Sigvaldadóttur í starfi með börnum þannig að börnin læri um umhverfi sitt.
    Ýmis verkefni voru skipulögð í tengslum við söguna og tóku 8 börn í elsta árgangi leikskóla í nágrenni dalsins þátt í þeim í mars 2007.
    Til gagnaöflunar voru gerðar þátttökuathuganir, ljósmyndir voru teknar, samræður og mat barnanna á verkefnunum voru teknar upp á upptökutæki, gerð var viðhorfskönnun meðal foreldra og einnig voru skráðar lýsingar á vettvangsferðum og verkefnum sem börnin unnu.
    Í ljós kom að bókin er góð kveikja til náttúruskoðunar og umræðu um hvernig var umhorfs á þeim tíma sem Breiðholtið var að byrja að byggjast upp. Einnig er bókin góður umræðugrundvöllur til að viðhalda íslenskri sagnahefð um álfa. Þekking barnanna á umhverfi sínu jókst eftir vettvangsferðirnar samkvæmt því sem skráð var á þekkingarvef í upphafi og að rannsókn lokinni.

Samþykkt: 
  • 10.9.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/842


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
valgodds[1].pdf361.46 kBOpinnHeildartexti PDFSkoða/Opna