is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8470

Titill: 
  • Umhverfisvænar hreinsivörur Undri ehf - markaðssetning
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmiðið með lokaverkefni þessu er að kanna stöðu umhverfisvænna hreinsivara á innanlandsmarkaði ásamt því að kanna hvort hægt sé að auka markaðshlutdeild þeirra vara sem framleiddar eru hér á landi. Unnið er með fyrirtækið Undra ehf sem framleiðir alhliða umhverfisvænar hreinsivörur en það hefur verið starfrækt í rúmlega 12 ár. Til að meta stöðuna er gerð umhverfisgreining ásamt því að ytra og innra umhverfið er greint, einnig er gerð SVÓT greining þar sem settir eru fram styrkleikar og veikleikar, auk ytri þátta það er ógnanir og tækifæri.
    Til að fá innsýn í markaðstöðu umhverfisvænna hreinsivara og vara sem framleiddar eru hjá Undra voru framkvæmdar markaðsrannsóknir. Rannsóknirnar voru framkvæmdar í nóvember og desember 2010 og var notast við megindlegar og eigindlegar rannsóknaraðferðir. Gerð er markaðsrannsókn til að kanna viðhorf neytanda til umhverfisvænna vara, einnig er talað við söluaðila til að fá þeirra viðhorf og upplifun varðandi kaup neytenda á vörunum. Enn fremur er verð og hillurými varanna athugað í átta verslunum. Kannað er hvort opinberar stofnanir eru með umhverfisvæna stefnu og einnig skoðað hvernig lögum er háttað varðandi þennan málaflokk. Sett er fram aðgerðaráætlun fyrir Undra þar sem næstu skref markaðsaðgerða eru sett fram.
    Helstu niðurstöður leiddu í ljós að neytendur vilja nota umhverfisvænar hreinsivörur og styðja íslenska framleiðslu. Hreinsivörur fá svipað rými í verslunum hvor heldur er umhverfisvænar eða aðrar vörur. Neytendur eru tilbúnir að nota vörurnar í ríkara mæli en finnst vanta að þær séu betur merktar þannig að auðvelt sé að koma auga á þær. Yngri neytendur finnst ekki skipta máli hvort varan sé íslensk eða umhverfisvæn, þau velja vörurnar aðallega eftir verði hennar.
    Lykilorð: hreinsivörur, markaðssetning, markaðshlutdeild, viðskiptavinurinn, íslensk framleiðsla.

Athugasemdir: 
  • Athugasemdir er á ensku Lykilorð: hreinsivörur, markaðssetning, markaðshlutdeild, viðskiptavinurinn, íslensk framleiðsla.
Samþykkt: 
  • 11.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8470


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BrynjaÞóra-ha060063-LOK2106_leidrett.pdf1.27 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna