is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8492

Titill: 
  • Meðferðir sjúkraþjálfara við mjaðmagrindarverkjum á meðgöngu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð fjallar um mismunandi meðferðir sjúkraþjálfara við mjaðmagrindarverkjum á meðgöngu, en um 20% ófrískra kvenna glíma við þetta vandamál. Tilgangur ritgerðarinnar var tvíþættur; annars vegar að kynna sér heimildir um mismunandi meðferðir við mjaðmagrindarverkjum á meðgöngu, hins vegar að kanna algengi hverrar meðferðar hjá sjúkraþjálfurum í Félagi íslenskra sjúkraþjálfara og rök þeirra fyrir vali sínu á meðferðum. Þetta var kannað með spurningalista. Margar meðferðir eru í boði fyrir konur með mjaðmagrindarverki á meðgöngu. Gerð verður grein fyrir hverri meðferð, rannsóknum sem liggja að baki henni, auk kostum og göllum hverrar meðferðar. Einnig verður fjallað um í hvaða tilfellum hver meðferð á rétt á sér. Niðurstöður úr könnuninni voru að fræðsla, mjúkvefjameðferð, æfingar og útvegun hjálpartækja voru algengustu form meðferða við mjaðmagrindarverkjum á meðgöngu meðal sjúkraþjálfara á Íslandi. Yfir helmingur sjúkraþjálfara notuðu einnig teygjur, liðlosun og hitameðferð við þessu vandamáli. Minna en helmingur notuðu laser, kinesio teip, kuldameðferð, TENS, nálastungur og hljóðbylgjur í meðferð sinni. Almennt voru ekki nægar heimildir til varðandi árangur meðferða við mjaðmagrindarverkjum á meðgöngu. Þörf er á að rannsaka þetta betur.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis is about the different therapies physiotherapists use when treating pelvic girdle pain during pregnancy, which is a fairly common problem among pregnant women, as approximately 20% suffer from this problem. The purpose of this thesis was twofold, on the one hand to study the documentation on different therapies, and on the other hand to find out what type of therapy is preferred by physiotherapists in Iceland and the reason behind their treatment choices. This was done by using a questionnaire.
    Many therapies are available for women with pregnancy related pelvic girdle pain. Each of these therapies was assessed individually, according to available research, and their pros and cons were evaluated as well as recommended application.
    The results of the questionnaire suggest that patient education, soft tissue therapy, excersises and providing aids are the most common therapies used when treating pelvic girdle pain during pregnancy among physiotherapists in Iceland. Over half of the physiotherapists also used stretching, mobilization and heat therapy for this particular problem. Less than half of them used laser, kinesio tape, cryotherapy, TENS, acupuncture and ultrasound in their treatments.
    In general the evidence is still inconclusive for the effectiveness of the different therapies used for pelvic girdle pain during pregnancy. There is a need for more research in this area.

Samþykkt: 
  • 12.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8492


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS ritgerd.pdf579.74 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna