is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/860

Titill: 
  • Hvað ræður ráðningu íslenskra útrásarfyrirtækja við val á stjórnendum?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Fyrirtæki í alþjóðlegum viðskiptum verða að vanda val sitt við
    ráðningu á stjórnendum. Íslensk fyrirtæki eru ung í alþjóðavæðingunni
    og þurfa því á hæfileikaríkum og reynslu miklum stjórnendum að
    halda. Það er því mikilvægt þegar ráða þarf stjórnanda til alþjóðlegra
    fyrirtækja að vanda ráðningarferlið og velja áreiðanlegustu aðferðafræðina
    við að ráða réttan aðila. Hægt er að fara ýmsar leiðir í
    ráðningarferlinu við val á umsækjanda í stjórnunarstöðu en þær helstu
    eru staðbundin viðtöl, persónuleikapróf eða hæfnispróf. Þessi aðferðafræði
    er talin nokkuð áreiðanleg til að komast að því hvort viðkomandi
    sé hæfur og uppfylli kröfur sem gerðar eru til starfsins. Það er því
    mikilvægt að búið sé að greina hverjar kröfurnar eru og eins hvaða
    eiginleika umsækjandi þarf að hafa til að fá ráðningu. Hægt er að nota
    niðurstöður úr viðtölum eða prófum til að bera saman umsækjanda við
    þær kröfur sem eru gerðar og taka þannig ákvörðun um endanlegt val á
    ráðningu.
    Þátttakendur í rannsókninni voru fjögur íslensk útrásarfyrirtæki. Þessi
    fyrirtæki eru í alþjóðlegum viðskiptum á sviði framleiðslu- og sölu,
    fjármála, fjárfestinga og smásölu. Tekin voru viðtöl við stjórnendur
    þessara fyrirtækja sem hafa með ráðningar í stjórnunarstöðu að gera.
    Rannsóknin var byggð upp með það í huga að fá svar við því hvað réði
    endanlegu vali við ráðningu í stjórnunarstöðu hjá fyrirtækjunum.
    Samkvæmt rannsókninni er helst hægt að nefna að persónueinkenni
    ráði endanlegu vali eftir að umsækjandi hefur gengið í gegn um allt
    ráðningarferlið. Niðurstöður rannsókna sýndu ekki fram á nýja
    aðferðafræði. Fyrirtækin nota fræðin samhliða sínum aðferðum við
    ráðningar í stjórnunarstöðu.
    Lykilhugtök:
    Stjórnandi
    Alþjóðlegur stjórnandi
    Val á stjórnanda
    Ráðningarferlið

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/860


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Efnisyfirlit PDF.pdf90.1 kBOpinnHvað ræður - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Elísabet Jónsdóttir B.Sc.pdf481.21 kBTakmarkaðurHvað ræður - heildPDF
Heimildaskrá.pdf93.42 kBOpinnHvað ræður - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Útdráttur.pdf66.3 kBOpinnHvað ræður - útdrátturPDFSkoða/Opna