is Íslenska en English

Lokaverkefni

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > Rannsóknarverkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8633

Titill: 
  • Tegundasamsetning botndýra á hörðum botni í höfnum á Suðvesturlandi
Útdráttur: 
  • Gamla höfnin í Reykjavík, Grindavíkurhöfn og Sandgerðishöfn voru skoðaðar með því markmiði að athuga tegundasamsetningu á hörðum botni þeirra og sjá hvort að það væri eitthvað sérstakt að finna. Flestar tegundir og einstaklingar reyndust vera í Reykjarvíkurhöfn, þar sem var einnig meiri þéttleiki einstaklinga en í hinum höfnunum. Höfnin í Grindavík reyndist vera með svipað samfélag botndýra og Reykjavíkurhöfn. Mesti lífræðilegi fjölbreytileikinn var í Sandgerðishöfn en minnstur í Reykjavíkurhöfn. Algengasta tegundin sem fannst við sýnatökurnar var kræklingur (Mytilus edulis). Þó var nokkur útlits og stærðarmunur á þeim einstaklingum sem fundust í Reykjavík og þeim sem fundust hinum höfnunum. Það mætti kanna nánar ástæðuna fyrir þessu m.a. með erfðafræðirannsóknum. Tvær tegundir hrúðurkarla fundust, Balanus balanus og B. crenatus, og voru þeir mest áberandi af þeim ásætum sem fundust.
    Í ljós kom að glærmöttull (Ciona intestinalis) fannst í talsverðu magni á flotbryggjum en þessi tegund er sennilega nýlega komin hingað til landsins. Til að komast að því hvort að þessi tegund sé ágeng hér við strendur Íslands væri ráðlegt að kanna möguleg áhrif glærmöttuls á samfélag dýra sem lifa á hörðum botni. Yfirhöfuð mætti framkvæma ítarlegri rannsókn yfir lengri tíma til að komast nánar að þessu sem og fá einnig nánari þekkingu á tegundasamsetningu botndýra í höfnum á Íslandi.

Samþykkt: 
  • 20.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8633


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Botndyrarannsokn(hafnir).pdf699.5 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna