is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8710

Titill: 
  • Upplifun eldri borgara af heimaþjónustu. Fræðileg úttekt
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessa fræðilega yfirlits var að skoða upplifun eldri borgara af því að þiggja heimaþjónustu. Á Íslandi sem og í hinum vestræna heimi hefur hlutfall aldraðra aukist verulega og spáð er áframhaldandi aukningu á næstu áratugum. Þetta kallar á aukna þjónustu og er stefna heilbrigðisyfirvalda að auka heimaþjónustu. Hérlendis er í boði fjölbreytt heimaþjónusta, bæði félagsleg heimaþjónsta og heilbrigðisþjónusta sem er ætlað að mæta andlegum, líkamlegum og félagslegum þörfum eldri borgara sem þurfa á stuðningi og aðstoð að halda. Því er mikilvægt að þekkja viðhorf eldri borgara til heimaþjónustu og reynslu þeirra af henni.
    Tvær rannsóknarspurningarnar voru settar fram: Hverjar eru væntingar eldri borgara til heimaþjónustu? Hvernig upplifa eldri borgarar það að njóta heimaþjónustu? Gerð var nákvæm leit í gagnagrunnum Cinahl, SciVerse, ProQuest, og PubMed. Flestir vilja geta dvalið á sínum heimilum sem lengst og geta fengið aðstoð þegar starfshæfnin skerðist. Algengustu umkvartanir þátttakenda í þeim rannsóknum sem fundust um efnið tengdust missi á sjálfræði, óánægju með tímasetningar og að ekki væri tekið tillit til andlegra- og félagslegra þarfa þeirra. Eldri borgarar voru óvissir um hvert þeir gætu leita til að fá aðstoð. Mikil þörf er á frekari rannsóknum til að hægt sé að greina þarfir þjónustuþega betur og hvernig hægt er að koma á móts við þær.
    Lykilorð: eldri borgarar, heimaþjónusta, upplifun, viðhorf

Samþykkt: 
  • 24.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8710


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ólafía Ingibjörg B.S..pdf404.42 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing_Ólafía.pdf316 kBLokaðurYfirlýsingPDF