Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8798
Kannaðir voru próffræðilegir eiginleikar íslenskrar útgáfu persónuleikaprófsins IPIP-HEXACO. Þátttakendur voru 724 Íslendingar á aldrinum 16 til 69 ára. Áreiðanleiki yfir- og undirþátta prófsins reyndist góður. Þáttauppbygging kom vel út og fylgni á milli yfirþátta var ásættanleg. Samleitni- og aðgreiniréttmæti var gott með fáum undantekningum. Meðalstigafjöldi og staðalfrávik á undirþáttum voru sambærileg og í enskri útgáfu prófsins auk þess sem munur á milli kynja var óverulegur. Að lokum var hægt að mynda kvarða úr atriðum innan prófsins sem getur hugsanlega mælt félagslegan æskileika. Almennt séð benda niðurstöður til þess að próffræðilegir eiginleikar íslenskrar útgáfu IPIP-HEXACO séu fullnægjandi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Bs-Ritgerd-PalmarRagnarsson-Final.pdf | 1.44 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |