is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8836

Titill: 
  • Endurhæfing vegna offitu á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ofþyngd og offita hefur verið vaxandi vandamál síðustu áratugi og nú er vandinn skilgreindur sem alheimsfaraldur og er Ísland þar ekki undanskilið. Ástæðurnar eru margvíslegar en ráðast þó aðallega af hegðunarþáttum og stærstu áhrifaþættirnir eru mataræði og hreyfing. Í þessari heimildasamantekt er fjallað um ofþyngd og offitu, skilgreiningar, orsakir, afleiðingar og leiðir til úrbóta með áherslu á endurhæfingu vegna offitu á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað (FSN). Hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki á sviði heilsueflingar og heilbrigðisfræðslu í að ná stjórn á offitufaraldrinum og koma í veg fyrir sjúkdóma af völdum ofþyngdar og offitu. Á FSN hefur verið boðið upp á endurhæfingu fyrir fólk í ofþyngd og offitu frá árinu 2007. Endurhæfing á FSN er þverfagleg teymisvinna og hópmeðferð fyrir átta einstaklinga í fimm vikur og eftirfylgni í tvö ár. Meginmarkmið endurhæfingarinnar er að auka skilning á orsökum og afleiðingum offitu með fræðslu þar sem aðaláhersla er á breyttan lífsstíl til frambúðar. Unnið er jafnhliða með líkamlega, sálræna og félagslega þætti. Höfundar töluðu við þrjá einstaklinga sem lokið höfðu meðferð fyrir a.m.k. tveimur árum síðan og spurðu út í árangur og reynslu þeirra af endurhæfingu vegna offitu á FSN, einnig var rætt við hjúkrunarfræðing í endurhæfingarteymi FSN. Niðurstöður voru þær að endurhæfing við offitu skilar árangri að því leyti að flestir þátttakendur hætta að þyngjast, viðhalda eigin þyngd eða léttast á meðan á endurhæfingunni stendur, þó virðast flestir eiga erfiðast með að viðhalda árangrinum þegar eftirfylgni lýkur. Við teljum að lykillinn að betri árangri í þyngdarstjórnun og bættri líkamlegri og sálrænni líðan, sé bætt eftirfylgni t.d. með því að heilsugæslan sinni reglubundnum mælingum og viðtölum og efli þannig einstaklinga í að viðhalda og auka þyngdartap. Einnig þarf að virkja fjölskyldu einstaklings sem stuðning fyrir hann á meðan á endurhæfingu stendur og einnig eftir útskrift.
    Lykilhugtök: Offita, ofþyngd, endurhæfing, hópmeðferð, næring og hreyfing.

Samþykkt: 
  • 31.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8836


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
loka loka 3.pdf1.82 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Forsíða.pdf19.18 kBOpinnForsíðaPDFSkoða/Opna