is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8866

Titill: 
  • Beint frá býli, félag heimavinnsluaðila
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Beint frá býli eru nýleg samtök sem stofnuð voru í ársbyrjun 2008. Markmið samtakanna er að vera stuðningur við bændur sem vilja framleiða og selja vörur sínar beint frá býli. Með því að vera aðili að samtökunum er auðveldara fyrir söluaðila að nálgast flestar þær upplýsingar sem þarf til að hefja framleiðslu og sölu á sama staðnum.
    Tilgangur verkefnisins er að kanna með hvaða hætti aðilar að samtökunum geti markaðssett sig á sem hagkvæmastan hátt ásamt því að greina hversu vel almenningur þekkir vörumerkið. Rannsóknarspurningin sem höfð er að leiðarljós er þessi:
    Með hvaða hætti geta aðilar samtakanna Beint frá býli nýtt sér samhæfða markaðslega boðmiðlun til að koma vöru sinni á framfæri á sem skilvirkastan hátt?
    Til að komast að niðurstöðu framkvæmdi höfundur þrjár mismunandi rannsóknir sem eru rafræn könnun, vettvangskönnun og viðtalskönnun. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að vörumerkjavitund neytenda er í meðal lagi eða rúmlega helmingur viðmælenda þekkir vörumerkið Beint frá býli. Við kynningar og markaðssetningu eru það helst almannatengsl, persónuleg sölumennska og internetið sem er notað og virðist virka best.
    Helstu tillögur höfundar er að nýta heimasíðu félagsins áfram og fá bændur til að auglýsa og selja sínar vörur saman.
    Lykilorð: Samhæfð markaðsleg boðmiðlun, vörumerki, Beint frá býli, miðuð markaðssetning og kynningarráðar.

Samþykkt: 
  • 31.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8866


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Beint fra byli.pdf3.4 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá.pdf118.56 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna
Efnisyfirlit.pdf109.21 kBTakmarkaðurEfnisyfirlitPDF