is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8881

Titill: 
  • Sinfóníuhljómsveit Norðurlands : breytt aðkoma að markaði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur verið starfrækt frá árinu 1993 og hefur síðan þá staðið fyrir stórum sem smáum menningarviðburðum á Norðurlandi og víðar. Í ágúst 2011 flutti hljómsveitin í Menningarhúsið Hof og fékk þar fast aðsetur ásamt frábærri æfinga- og tónleikaaðstöðu. Þannig myndaðist nýr grundvöllur fyrir markaðsstarf hljómsveitarinnar.
    Í þessu verkefni er markaðsumhverfi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands greint með það að markmiði að gera nýja markaðs- og aðgerðaráætlun.
    Rætt var við nokkra samkeppnisaðila hljómsveitarinnar á menningar-markaðinum um hvað þeir væru að gera í sínum markaðsmálum. Þó að samkeppnisaðilarnir bjóði upp á misjafna afþreyingu kom í ljós að þeir nota í mörgum tilfellum svipaðar aðferðir þar sem áhersla virðist vera lögð á ódýrar og árangursríkar aðferðir. Þetta er einmitt sá flötur sem hentar starfsumhverfi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands mjög vel, þar sem breytingar í efnahagsumhverfinu hafa þrengt að fjárhag hennar síðustu ár. Hljómsveitin notar nú þegar hluta af þessum aðferðum, en í nýrri markaðs- og aðgerðaráætlun er áhersla lögð á að útfæra þær betur ásamt því að kanna nýjar leiðir.
    Markmið nýrrar markaðs- og aðgerðaráætlunar er að veita Sinfóníuhljómsveit Norðurlands möguleika á að styrkja markaðsstarf sitt á auðveldan, markvissan og ódýran hátt og þar með að bæta markaðsstöðu sína.
    Lykilorð: Markaðsáætlun, aðgerðaráætlun, markaðsumhverfi, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, samkeppnisaðilar.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað
Samþykkt: 
  • 31.5.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8881


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni SN.pdf692.13 kBLokaðurHeildartextiPDF