is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/8979

Titill: 
  • Viðhorf dómara til fyrningar sakar í kynferðisbrotum gegn börnum
Útgáfa: 
  • Desember 2008
Útdráttur: 
  • Í greininni er lýst niðurstöðum viðtala við sex íslenska dómara um persónulega afstöðu þeirra til nokkurra þátta varðandi kynferðisbrot gegn börnum og lögum og lagaframkvæmd á því sviði. Tilefnið er einkum lög nr. 61/2007, þar sem svo er mælt fyrir að nánar tilgreind alvarleg kynferðisbrot skuli ekki fyrnast. Ein helsta niðurstaðan er sú að a.m.k. fimm af þeim sex dómurum sem tóku þátt í rannsókninni eru sammála breytingunni. Þeir telja að fyrst og fremst beri að horfa til alvarlegra og langvarandi afleiðinga brotanna fyrir brotaþolann og að skipa eigi þessum brotum á bekk með alvarlegustu afbrotum sem þeir hafa fengist við í störfum sínum. Í öðru lagi leggja þeir áherslu á hinar sérstöku aðstæður sem brot þessi eru yfirleitt framin við og það sérkenni þeirra að þau koma oft ekki upp á yfirborðið fyrr en löngu eftir að þau eru framin. Þetta viðhorf er í samræmi við þær meginröksemdir sem settar voru fram til stuðnings breytingunum í aðdraganda þeirra og styður við þær. Í viðtölunum endurspeglast sterk samúð dómaranna með þolendum kynferðisbrota, þótt þeir leggi um leið áherslu á skyldur sínar að halla ekki á rétt sakbornings til réttlátrar málsmeðferðar.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla, 4 (2) 2008, 159-180
ISSN: 
  • 16706803
Athugasemdir: 
  • Fræðigrein
Samþykkt: 
  • 7.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/8979


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
a.2008.4.2.3.pdf216.16 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna