Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9003
Þessi ritgerð fjallar í grófum dráttum um myndlist í opinberu rými. Ég fjalla um breytinguna sem hefur orðið á hefðbundnum skúlptúr fyrri alda til þrívíddar verka nútímans. Helsta breytingin er sú að í nútíma rýmisverkum þá er virkni áhorfandans mikilvæg og einnig tengslin við vettvang staðarins, en áður þá var verkið oft óháð tíma og rúmi. Richard Serra hefur verinn talinn frumkvöðull í list í opinberu rými. Hann var í hefðbundnum skúlptúr en þróaðist ásamt öðrum framsæknum listamönnum í átt til skoðunar á opinberu rými. Tími staðarins og heyfing mannsins í gegnum hann varð hans útgangspunktur í listinni. Kristinn E.Hrafnsson tekur einnig þetta efni fyrir, en þó á ólíkan hátt. Hann samlagar sig meira aðstæðum og vinnur út frá sögu eða virkni staðarins og gefur því sýnilegt rými. Hlynur Hallsson er í sama flokki og fyrr nefndir listamenn en einbeitir sér meira að tungumálinu og gerð samfélagsins. Í lokin þá fjalla ég um nokkur eigin verk sem hafa tengingar inn á þetta svið. Vinnuaðferðir mínar og kveikjur að verkunum eru einnig til umfjöllunar.
Að lokum þá tek ég saman alla þessa þætti og fjalla um þá í víðu samhengi. Ég horfi til framtíðar varðandi list í opinberu rými og kem með eigin hugrenningar í tengslum við það. Í gegnum ritgerðina þá á sé stað spjall á milli mín og ónefndar konu og endurspeglast þar ólík viðhorf okkar til myndlistar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerd.pdf | 642.35 kB | Lokaður | Heildartexti |