is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9030

Titill: 
  • Ólafía. Ævisaga Ólafíu Jóhannsdóttur
Útgáfa: 
  • Desember 2006
Útdráttur: 
  • Fimm ár eru liðin frá því bók Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur um Björgu C. Þorláksson kom út og sópaði til sín bæði lesendum og verðlaunum. Margir hafa beðið næstu bókar með eftirvæntingu, en ljóst var að hún myndi borin saman við Björgu og kannski dæmd af því fyrst og fremst – með réttu eða röngu. Og nú er bókin semsé komin. Hún er hálft sjötta hundrað blaðsíður og fylgir settum reglum um fræðilegan frágang sem truflar þó ekkert textann. Pappírinn í bókinni er mjög lesvænn og metnaður af hálfu útgáfunnar augljóslega mikill. Ljósmyndir eru fjölmargar og setja skemmtilegan svip á bókina. Kápumynd er einföld og grípandi og ljósmyndin sem prýðir hana er vel valin. Um varir konunnar leikur
    hálfgert Mónu Lísu bros – eins og hún viti eitthvað merkilegt og sé rétt í þann mund að opinbera þá vitneskju. Bókin Ólafía býður upp á nánari kynni af margbrotinni persónu, sem einnig var afar brothætt og farnaðist misvel í lífsins ólgusjó.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla, 2 (2) 2006
ISSN: 
  • 16706803
Athugasemdir: 
  • Bókardómur
Samþykkt: 
  • 7.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9030


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
c.2006.2.2.2.pdf26.49 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna