is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9119

Titill: 
  • Mannréttindi, fötlun og fjölskyldulíf. Í tilefni yfirfærslu málefna fatlaðs fólks til sveitarfélaga
Útgáfa: 
  • Desember 2009
Útdráttur: 
  • Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var undirritaður af Íslandi í mars 2007, en með undirrituninni skuldbinda íslensk stjórnvöld sig til að gera ekkert sem gengur gegn efni samningsins. Um allan heim er nú litið til þessa samnings sem leiðarljóss í málefnum fatlaðs fólks og þjóðir heims, Ísland þar með talið, eru nú óðum að staðfesta samninginn og aðlaga lagaumhverfi sitt að honum. Eitt af lykilatriðunum við yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaganna er kynning á þessum nýja samningi og mannréttindaáherslum sem þar er að finna, en þekking á innihaldi samningsins er nauðsynleg forsenda þess að jafnrétti og mannréttindi fatlaðs fólks hér á landi verði tryggð. Þessi grein fjallar um einn hóp fatlaðs fólks, foreldra með þroskahömlun, og rétt þeirra til fjölskyldulífs sem dæmi um breyttan skilning á stöðu fatlaðs fólks í samfélaginu og þá þjónustu sem það á rétt á. Rakið er hvernig réttur foreldra til samvista við börn sín hefur þróast á undanförnum áratugum í mannréttindasáttmálum og dómsúrskurðum. Niðurstöður sýna að ef foreldrar með þroskahömlun eiga að njóta þeirrar réttarverndar sem
    samræmist markmiðum stjórnarskrár íslenska lýðveldisins, mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi fjölskyldulífs og samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks er ljóst að þörf er á verulegu átaki og viðhorfsbreytingum innan stofnana ríkis og sveitarfélaga, sem hafa með höndum málefni fatlaðs fólks, barnaverndar og félagslegs stuðnings, svo og dómskerfisins alls, til að tryggja að foreldrar með þroskahömlun standi jafnfætis öðrum foreldrum.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla, 5 (2) 2009, 363-382
ISSN: 
  • 16706803
Athugasemdir: 
  • Fræðigrein
Samþykkt: 
  • 9.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9119


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
a.2009.5.2.8.pdf211.42 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna