is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9133

Titill: 
  • Ákvarðanataka skipulagsheilda. Samanburður einkafyrirtækja og opinberra stofnana
Útgáfa: 
  • Desember 2010
Útdráttur: 
  • Markmið greinarinnar er að skoða ákvarðanatöku stjórnenda hjá opinberum stofnunum og svara þeirri spurningu hvort munur sé á ákvarðanatöku þeirra samanborið við stjórnendur einkafyrirtækja. Viðtöl voru tekin við stjórnendur hjá þremur einkafyrirtækjum og þremur opinberum stofnunum. Niðurstöður leiða í ljós að stjórnendur opinberra stofnana og einkafyrirtækja virðast beita svipuðum aðferðum við ákvarðanatöku. Munurinn felst fremur í stærð fyrirtækjanna en eignarformi en eftir því sem fyrir tækin eru stærri taka fleiri þátt í ákvarðanatökuferlinu. Greining sýnir að stjórnendur í minni opinberum stofnunum hafa minna umboð til ákvarðanatöku en í einka fyrir tækjum, sérstaklega hvað varðar stefnumarkandi atriði. Að öðru leyti er lítill munur milli smá fyrirtækja og lítilla opinberra stofnana – stjórnendur þeirra beita iðulega skynsemislíkani og takmarkaðri skynsemi við
    úrlausn vandamála. Ferli ákvarðana er mjög áþekkt í stærri einkafyrirtækjum og opinberum stofnunum. Ákvarðanir taka lengri tíma hjá opinberum stofnunum í stærri málum eins og nýbyggingum og stefnu mótun og þá einkennist ferlið af áfangaákvörðunum þar sem málamiðlanir milli ólíkra hags muna aðila eru algengar. Ennfremur má geta þess að margvísleg lög, eins og jafnræðislög, starfsmannalög, stjórnsýslulög og stefna sveitarfélaga, takmarka ákvarðanavald opinberra stjórnenda, sem ekki á við um stjórnendur einka fyrirtækja. Afleiðingar hrunsins í efnahagslífinu höfðu mun meiri áhrif á ákvarðanatöku stjórnenda opinberu stofnananna en hjá stjórnendum einkafyrirtækjanna, en þó hafði hrunið töluverð áhrif hjá stærsta einkafyrirtækinu.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla, 6 (2) 2010, 253-275
ISSN: 
  • 16706803
Athugasemdir: 
  • Fræðigrein
Samþykkt: 
  • 9.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9133


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
a.2010.6.2.6.pdf291.28 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna