is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9144

Titill: 
  • Starfsumhverfi hins opinbera. Hlutverk stjórnenda og viðhorf starfsmanna
Útgáfa: 
  • Desember 2010
Útdráttur: 
  • Fyrirkomulag starfsmannamála hjá hinu opinbera hefur nokkuð verið í umræðunni síðustu ár. Starfsumhverfi opinberra starfsmanna tók miklum breytingum um miðjan tíunda áratug síðustu aldar þegar hugmyndafræði nýskipans í ríkisrekstri hélt innreið sína. Markmiðið var að breyta starfs- og rekstrarumhverfi
    hins opinbera þannig að ríkið sem vinnuveitandi hefði á að skipa hæfu starfsfólki og stofnanir gætu keppt við einkafyrirtæki um hæft starfsfólk. Enn fremur var markmiðið að ríkið gæti sinnt samfélagslegum skyldum sínum betur með því að stuðla að hagkvæmni, árangri og skilvirkni í rekstri opinberra stofnana. Til að ná þessum markmiðum varð m.a. að breyta starfsmannalögum, kjarasamningum og starfsmannastefnu hins opinbera. Með aukinni dreifstýringu sem fólst meðal annars í hugmyndafæði nýskipanar í ríkisrekstri voru kröfur til forstöðumanna auknar. Sjálfstæði og sveigjanleiki stofnana og forræði í starfsmannamálum var lagt til grundvallar. Áhersla var lögð á að stjórnendur hefðu meira rekstrarlegt svigrúm og sjálfdæmi í málum sem varðaði starfsmenn þeirra. Með breytingum á lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, nýrri starfsmannastefnu og stofnanasamningum var lagður grunnur að nútímalegri stjórnunarháttum hjá opinberum stofnunum.
    Í greininni er rætt um hlutverk stjórnenda eins og það birtist í stjórnunarfræðunum. Dregin er upp mynd af breyttu starfsumhverfi opinberra starfsmanna með hliðsjón af nokkrum íslenskum rannsóknum sem varpa ljósi á þroskastig mannauðsstjórnunar, innra starfsumhverfi þeirra og starfsumhverfi opinberra starfsmanna. Einnig er gerð grein fyrir hæfniskröfum til forstöðumanna sem
    tilgreindar eru í lögum 17 stofnana.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla, 6 (2) 2010, 63-78
ISSN: 
  • 16706803
Athugasemdir: 
  • Almenn grein
Samþykkt: 
  • 9.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9144


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
b.2010.6.2.4.pdf158.93 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna