Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9224
Tilgangur: Rannsókn var gerð til að kanna hvort fimm vikna skynmyndaþjálfun hefði áhrif á óþvinguð mistök og mat á eigin færni í badminton. Einnig var athugað hvort skynmyndaþjálfunin hefði áhrif á sjálfstraust, einbeitingu/athygli og kvíða.
Efni og aðferðir: Valdar voru sex stúlkur til að taka þátt í rannsókninni. Haldinn var kynningarfundur með þeim um skynmyndaþjálfun í upphafi rannsóknar. Þar var farið yfir hvernig skynmyndir geta bætt frammistöðu. OMSAT sjálfsmatskvarðinn sem metur hugræna færni og spurningalisti rannsakanda voru lagðir fyrir. Óþvinguð mistök voru talin á æfingu og í keppni fyrir og eftir inngrip. Rannsakandi hitti stúlkurnar einu sinni í viku í fimm vikur. Ný skynmyndaæfing var afhent í hvert sinn. Spurningalistar voru lagðir aftur fyrir í lok rannsóknar. Auk þess voru tekin einstaklingsviðtöl til að heyra upplifun stúlknanna af skynmyndaþjálfuninni.
Niðurstöður: Eftir fimm vikna skynmyndaþjálfun fækkaði óþvinguðum mistökum, mat á eigin færni hækkaði og hugræn færni þátttakenda sem var mæld með OMSAT varð betri.
Ályktanir: Samkvæmt niðurstöðum hefur skynmyndaþjálfun jákvæð áhrif á frammistöðu í badminton, mat á eigin færni og hugræna færni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð.pdf | 474.46 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |