Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9236
Viðfangsefni verkefnisins var íþróttavika sem haldin var í fámennu bæjarfélagi á Íslandi. Markmið íþróttavikunnar var að kynna heilbrigðan lífsstíl og fjölbreyttri hreyfingu fyrir íbúum. Lagt var upp með að stuðla að jákvæðu viðhorfi íbúa í garð hreyfingar. Framkvæmd verkefnisins fólst í undirbúningi og framkvæmd æfinga, framkvæmd viðhorfskannanna á meðal þáttakenda og úrvinnsla gagna úr þeim ásamt árangursmati. Þátttakendur voru íbúar bæjarfélagsins og var þeim skipt niður í þrjá hópa; leikskólabörn, grunnskólanema og fullorðna einstaklinga. Niðurstöður verkefnisins voru að íbúar juku hreyfingu, sýndu jákvæða viðhorfsbreytingu en á sama tíma sína niðurstöður að töluvert vantar upp á hvatningu frá fjölskyldu og vinum.
Lykilorð; Hreyfing, sjálfstraust, viðhorfsbreyting, hvatning og vellíðan.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Íþróttavika- Íhlutun í fámennu bæjarfélagi.pdf | 42.07 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |