is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/9240

Titill: 
  • Líkamsþjálfun fyrir verðandi og nýbakaðar mæður
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Líkamsþjálfun á meðgöngu er mikilvæg og talin hafa jákvæð áhrif á líkamlega og andlega líðan verðandi móður. Ef engin heilsufarsvandamál hrjá barnshafandi konur er mælt með að þær stundi líkamsþjálfun á meðgöngu, sjálfum sér og barninu til heilla. Markmiðið með þessari ritgerð er að fjalla um líkamsþjálfun og næringu barnshafandi kvenna og nýbakaðra mæðra á almennan hátt og sýna fram á mikilvægi þess að stunda heilbrigt líferni á meðan meðgöngu stendur. Gefin eru góð ráð um hvað það er sem þarf að hafa í huga eftir að þungun er staðfest og hvernig mæður geta upplifað heilbrigðari og ánægjuríkari meðgöngu með fremur einföldum aðgerðum og æfingum. Aðlaga þarf yfirleitt fyrri æfingaáætlun að líkamlegu ástandi barnshafandi kvenna og fer það eftir líkamlegu formi þeirra fyrir meðgöngu. Gert var æfingasafn sem sýnir og útskýrir (myndir og texti) þær æfingar sem henta sérstaklega vel fyrir konur á meðan meðganga stendur yfir og fyrstu mánuðina eftir meðgöngu.

Samþykkt: 
  • 16.6.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/9240


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
LOKALOKALOKA-RITGERÐ- 5,MAI.pdf527.99 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna